02.02.19 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Guyon Philips farinn frá Íslandi (Staðfest)

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Guyon Philips, sem spilaði með Víkingi Ólafsvík síðasta sumar, er búinn að skrifa undir samning við spænska félagið Alcobendas Sport.
Alcobendas er í toppbaráttu í D-deildinni á Spáni og er að styrkja sig fyrir lokakafla tímabilsins.
Guyon kom til Ólafsvíkur í fyrra en náði sér ekki á strik með liðinu. Hann er sóknarmaður og fékk aðeins að spila sex leiki í Inkasso-deildinni síðasta sumar.
Guyon hefur æft með Keflavík í allan vetur en fékk ekki samning. Hann var með nokkur tilboð frá liðum í 2. deildinni og spilaði leiki bæði með Þrótt Vogum og Vestra í Fótbolta.net mótinu í janúar.
Guyon, sem er fæddur 1993, skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið.