Fotbolti.net
02.02.19 - 07:15
Ívan Guðjón Baldursson

Valencia fær Sobrino frá Alaves (Staðfest)

Valencia fær Sobrino frá Alaves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia er búið að ganga frá kaupum á Ruben Sobrino sem kemur frá Alaves og kostar 5 milljónir evra.
Sobrino er uppalinn hjá Real Madrid og gekk í raðir Manchester City sumarið 2015. Man City lánaði hann til Girona og svo til Alaves sem ákvað að festa kaup á honum.

Sobrino gerði 12 mörk í 71 leik fyrir Alaves og er núna búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við Valencia, sem þurfti liðsstyrk fyrir Evrópubaráttuna sem er framundan.

Valencia heimsækir topplið Barcelona í spænsku deildinni í dag, en liðið er aðeins tveimur stigum frá Evrópusæti. Framundan er svo undanúrslitaleikur í bikarnum gegn Real Betis og hörkuslagur við Skotlandsmeistara Celtic í Evrópudeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.