Fotbolti.net
02.03.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Lovren: Við skömmumst okkar fyrir leikinn við Watford

Lovren var í byrjunarliði í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti síðan í desember.

Lovren var í byrjunarliði í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti síðan í desember.

Canon

Mynd: Getty Images

Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool, segir að leikmenn liðsins skammist sín fyrir 3-0 tapið gegn Watford á laugardaginn.
„Það er eins og einhver hafi slegið okkur í andlitið og við verðskulduðum þetta. Við skömmumst okkar svolítið því að það er engin afsökun fyrir þessari frammistöðu," sagði Lovren.

„Þetta er mjög sárt því að frá uphpafi til enda vantaði atriði hjá okkur sem eru vanalega í lagi. Stjórinn horfði á okkur í klefanum og ég held að hann hafi vitað að það var eitthvað sem vantaði."

„Þetta snerist um grimmd þegar við töpuðum boltanum og við vorum ekki nægilega fljótir að ná honum aftur."

„Vanalega er þetta ekkert vandamál fyrir okkur en gegn Watford voru þeir alltaf að vinna seinni boltana og það er ekki líkt okkur. Við þurfum að skoða þetta og átta okkur á því að þurfum að gera mun betur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.