Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 02. mars 2021 20:10
Aksentije Milisic
Segir að Maguire eigi ekki að vera í byrjunarliði Englands
Mynd: Getty Images
Darren Bent, fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins, segir að Harry Maguire, leikmaður Manchester United, eigi ekki að vera í byrjunarliði Englands á Evrópumótinu næsta sumar.

Harry er fyrirliði Manchester United en varnarleikur liðsins hefur þótt vera mjög misjafn á þessu tímabili. Varnarlínan sem og markvörður liðsins hafa fengið mikla gagnrýni fyrir spilamennsku sína.

„Ég myndi nota Tyrone Mings," sagði Bent þegar umræðan fór í sú átt, hver ætti að byrja í miðverðinum með John Stones á EM næsta sumar.

„Mings gefur þér þetta jafnvægi vinstra megin í vörninni. Hann hefur verið mjög góður á þessu tímabili og sýnt stöðugleika," sagði Bent um Mings.

„Ég veit að fólk mun tala um Maguire, en hann hefur verið út um allt í varnarleik sínum í vetur. Michael Kean gæti líka spilað þarna. En útaf jafnvæginu í liðinu, þá vel ég Mings."

Mings og félagar í Aston Villa eru í fínum málum í níunda sæti deildarinnar. Í fyrra náði liðið að bjarga sér frá falli á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner