Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   mán 02. mars 2026 17:07
Snæbjört Pálsdóttir
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Eimskip
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið á fyrir höndum risastórt verkefni en stelpurnar mæta ríkjandi heimsmeisturum Spánar annað kvöld á Spáni og eiga svo leik gegn nýkrýndum Evrópumeisturum Englands á laugardaginn á Englandi.

Fótbolti.net ræddi að því tilefni við Landsliðsfyrirliðann Glódísi Perlu Viggósdóttur. Hvernig leggst verkefnið í hana?

„Bara nokkuð vel, þetta er líklega erfiðasta verkefni sem að við allavega höfum nokkurn tímann farið í út frá hérna world rankings og liðum sem við erum að mæta, bæði á útivelli. Þannig að þetta verður virkilega erfitt en ég vona að við getum gert þetta að góðum degi.“


Hvernig hefur undirbúningi verið háttað?

„Við höfum bara verið að nýta æfingarnar í að samstilla okkur í því sem við ætlum að gera og hérna kannski aðeins fókusa meira á varnarleikinn. Við verðum minna með boltann og okkur verður að líða vel í þeim stöðum og loka þeim svæðum sem að þær vilja komast í. Þannig að já við verðum svolítið að fókusa á það og svo hvernig við getum nýtt þau svæði sem opnast þegar þær eru mikið að sækja.“

„Auðvitað er það gríðarlega svekkjandi að við höfum ekki nýtt seinasta landsliðsglugga. Það er eitthvað sem að okkur langaði til að gera sem hópur og hefði auðvitað verið frábært að fá meiri undirbúning þar sem við erum að fara í gríðarlega sterkan riðil og við erum að reyna að komast á HM, eitthvað sem að við höfum aldrei gert áður og þá stundum þarf maður að gera hluti sem maður hefur aldrei gert áður. Þannig auðvitað gríðarlega svekkjandi að fá ekki landsleikjaglugga fyrir áramót og svo aftur núna að nýta ekki alla daganna er auðvitað svekkjandi. Þetta er eitthvað sem að við þurfum að skoða sem þjóð ef við viljum halda áfram að vera í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta og við verðum að finna lausnir til að við getum fengið sama undirbúning og aðrar þjóðir. Jafnvel að gera það ennþá betur heldur en hinar þjóðirnar.“

 Hvað þarf að gerast svo Ísland nái að stríða Spánverjunum og krækja í einhver stig?

„Ég held að það sé fyrst og fremst varnarleikurinn, við verðum að vera þéttar, við verðum að loka á það sem þær vilja gera og svona eins og ég segi munum við vonandi finna tækifæri í svæðunum sem opnast þegar þær eru að sækja mikið. Svo tölum við alltaf auðvitað um föstu leikatriðin, það er eitthvað sem við erum góðar í en við fáum þau ekki að sjálfum sér, við þurfum að sækja þau. Það eru svona helst þessir punktar og helst kannski bara líða vel í varnarleiknum og ná upp svona orku í því.

Eru einhverjir leikmenn sem þarf að hafa sérstakar gætur á?

„Já, þær eru náttúrlega með margar af bestu leikmönnum í heimi. Patri (Guijarro) finnst mér, sexan þeirra, finnst mér besti leikmaður í heimi akkúrat núna og hún stýrir öllu spili hjá þeim. Þannig ég myndi segja svona fyrst og fremst hún en ég gæti líklega talið upp flesta leikmenn í liðinu sem eru bara frábærar fótboltakonur og spila mjög fallegan fótbolta. Þetta verður mjög verðugt verkefni og verður gaman fyrir okkur að takast á við þetta.“

Er eitthvað sem hún vill koma á framfæri til íslenskra áhorfenda?

„Bara fylgjast með leiknum, fá að sjá góðan fótbolta. Mögulega tvo mismunandi vinkla á fótbolta, eitt lið sem ætlar að sækja og annað lið sem ætlar að verjast og nýta veikleikana hinum megin.“

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner