02.04.19 - 19:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fran Marmolejo úr Víkingi Ó. í Víking R. (Staðfest)

Fran Marmolejo.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fran Marmolejo.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spænski markvörðurinn Francisco Marmolejo Mancilla hefur fengið félagaskipti úr Víkingi Ólafsvík yfir í Víking Reykjavík.
Fran Marmolejo er 31 árs gamall, en hann kom til Ólsara fyrir síðasta tímabil og lék 27 leiki í deild og bikar fyrir liðið.
Markvarðarbreytingar hafa verið miklar hjá Víkingi fyrir þetta tímabil. Þrír erlendir markverðir, þeir Andreas Larsen, Aris Vaporakis og Morice Mbaye eru allir farnir frá félaginu.
Þórður Ingason kom frá Fjölni og svo virðist sem Fran Marmolejo muni berjast við Þórð um markvarðarstöðuna.
Víkingur mætir Val í opnunarleik Pepsi Max-deildarinnar þann 26. apríl næstkomandil.
Víkingur Ó. samdi við króatískan markvörð á dögunum.