„Ég ræddi beint við hann eftir viðtalið og sagði við hann að hann ætti ekki að gera það sem hann hafði gert og fara frá félaginu undir skýi (á neikvæðum nótum)," sagði Steven Gerrard, goðsögn hjá Liverpool, í The Overlap. Hann var að ræða um Mo Salah í tengslum við ákvörðun Salah um að yfirgefa félagið í sumar.
Staða Salah var í óvissu í desember þegar hann var inn og út úr liðinu hjá Arne Slot og Salah lét ummæli falla sem létu marga halda að hann gæti farið frá félaginu strax í janúarglugganum. Gerrard setti sig þá í samband við Egyptann.
Staða Salah var í óvissu í desember þegar hann var inn og út úr liðinu hjá Arne Slot og Salah lét ummæli falla sem létu marga halda að hann gæti farið frá félaginu strax í janúarglugganum. Gerrard setti sig þá í samband við Egyptann.
„Ég talaði beint við hann. Hann sendir mér stundum skilaboð, eða ég honum - tengist aðallega hvort ég sé að fara eitthvert með Lio (syni Gerrard), svo að Lio geti hitt hann. Ég myndi ekki segja að við séum nánir."
„En ég fékk tækifæri til að segja við hann: „Þú ert búinn að vera hér í 8-9 ár, þú ert búinn að vera kóngurinn hérna, þú ert með þessa arfleifð, farðu bara á þínum forsendum, farðu á réttan hátt."
„Hann var ennþá að glíma við tilfinningarnar eftir atvikið. Hann var inn og út úr liðinu á þeim tíma, var ósáttur. Mér fannst bara leiðinlegt ef hann færi í janúar og færi án þess að kveðja."
Gerrard er á því að það sé best fyrir alla aðila að Salah fari í sumar. Hann er á því að Salah muni einn daginn sjá eftir viðtalinu sem hann fór í eftir leikinn gegn Leeds 6. desember. Þá var hann ónotaður varamaður í leiknum.
„Það kemur mér ekki á óvart að hann sé að fara. Ég held það sé best fyrir alla. Ég held að þetta sé rétt tímasetning. Hann hefur augljóslega verið ósammála stjóranum. Ég veit ekki hversu djúpt það fór. Hann fór í viðtalið sem ég held að hann muni sjá eftir í framtíðinni. En það viðtal sagði að það væri eitthvað vandamál," sagði Gerrard.


