Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Enzo Fernandez hjá Chelsea. Hann sagðist ekki vita hver framtíð hans væri eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn PSG.
Hann hefur verið orðaður við Real Madrid og hann hefur talað opinskátt um að vilja búa í Madrid. Telegraph greindi frá því að þessi ummæli hafi farið öfugt ofan í leikmenn Chelsea.
Hann hefur verið orðaður við Real Madrid og hann hefur talað opinskátt um að vilja búa í Madrid. Telegraph greindi frá því að þessi ummæli hafi farið öfugt ofan í leikmenn Chelsea.
John Obi Mikel, fyrrum leikmaður Chelsea, hraunaði yfir Fernandez í hlaðvarpsþættinum sínum Obi One Podcast .
„Þetta er ekki leiðtogi. Ef þú ert með leiðtoga sem leikmenn virða og líta upp til myndi maður ekki fara út með þessar yfirlýsingar," sagði Obi Mikel.
„Þú varst fyrirliðinn í þessum leik og ert svo með þessar yfirlýsingar, hvernig fer það í reynslumeiri leikmennina í klefanum? Ef hann er búinn að fá nóg, settu hendurnar upp og drullaðu þér í burtu. Við höldum áfram, enginn leikmaður er stærri en félagið, sérstaklega eins stórt félag og Chelsea."

