Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 02. júlí 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola útilokar endurkomu Sancho: Hann vildi ekki vera hér
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur útilokað að Jadon Sancho komi aftur til félagsins frá Borussia Dortmund til að fylla skarð Leroy Sane sem fór til Bayern Munchen í vikunni.

Sancho fór frá Manchester City til Dortmund árið 2017 en hann hefur verið mest orðaður við Manchester United að undanförnu.

Guardiola segr að það sé hins vegar ekki möguleiki á að Manchester City blandi sér í baráttuna um Sancho.

„Nei, nei, nei. Hann ákvað að fara. Af hverju ætti hann að ákveða að koma til baka?" sagði Guardiola.

„Þegar hann ákvað að fara til Dortmund þá var hann ekki að ákveða að koma aftur hingað síðar. Það myndi ekki passa. Hann vildi ekki vera hér svo þess vegna vill hann ekki koma aftur hingað."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner