02.07.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Atalanta og Napoli eigast við í hörkuslag

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atalanta og Napoli eigast við í einstaklega spennandi viðureign sem verður sýnd beint á Stöð 2 Sport 2 í dag.
Gennaro Gattuso er búinn að snúa gengi Napoli við og er liðið búið að vinna fimm deildarleiki í röð en það verður flókið að sigrast á Atalanta á útivelli.
Atalanta er búið að vinna sex leiki í röð og er í Meistaradeildarsæti sem stendur, tólf stigum fyrir ofan Napoli sem er í Evrópudeildarsæti.
Hvorugt liðið er að glíma við mikil meiðslavandræði og því hægt að búast við leik í háum gæðaflokki.
Að stórleiknum loknum fer viðureign Roma og Udinese af stað.
Heimamenn í Róm eru í fínni stöðu í Evrópubaráttunni, þó níu stigum frá Meistaradeildarsæti. Þeir verða án Lorenzo Pellegrini og Jordan Veretout í kvöld vegna uppsafnaðra spjalda. Þá missir markvörðurinn Pau Lopez af leiknum vegna meiðsla.
Leikir kvöldsins:
17:30 Atalanta - Napoli (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Roma - Udinese