Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. júlí 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lewandowski: Líður eins og ég sé 27 ára
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski var besti leikmaður tímabilsins í þýska boltanum og skoraði 34 mörk í 31 deildarleik sem er nýtt met.

Lewandowski verður 32 ára í ágúst en segist ekki finna fyrir aldrinum, honum líði eins og hann sé enn 27 ára og eigi enn mikið inni.

„Ég er að verða 32 ára en mér líður eins og ég sé 27 ára eða jafnvel yngri. Ég vil halda áfram að spila í mörg ár til viðbótar því ég veit að ég á ennþá eitthvað inni. Mér fannst ég spila uppá 90% á þessu tímabili og ég verð að bæta það fyrir næstu leiktíð. Ég er stöðugt að setja mér nýjar áskoranir," sagði Lewandowski.

„Ég er mjög ánægður og stoltur af því að vera leikmaður Bayern. Ég hef fengið tilboð frá stórveldum evrópska boltans en aldrei viljað fara héðan. Ég er búinn að spila í þýsku deildinni í tíu ár og ég vil halda áfram að raða inn mörkum og bæta mig hér."

Lewandowski hefur skorað 240 mörk í 284 keppnisleikjum með Bayern. Hann er samningsbundinn félaginu næstu þrjú árin.

Lewandowski hefur tvisvar áður náð 30 marka múrnum á einu deildartímabili. Hann hefur þó aldrei komist yfir hann áður.
Athugasemdir
banner
banner
banner