Fotbolti.net
02.07.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM í dag - Spánn, Portúgal og Sviss mæta til leiks

HM í dag - Spánn, Portúgal og Sviss mæta til leiks
Canon

Mynd: EPA

Heimsmeistaramótið er í fullu fjöri þessa dagana og eru þrír leikir á dagskrá í kvöld og í nótt.
Evrópsku stórveldin Spánn og Portúgal mæta til leiks, en þau voru bæði slegin út af Marokkó á síðasta heimsmeistaramóti.

Spánn spilar við Austurríki áður en Portúgal mætir Króatíu í stórleik seint í kvöld.

Spánn vann sinn riðil þökk sé sigrum gegn Úrúgvæ og Sádi-Arabíu á meðan Portúgal endaði í öðru sæti í sínum riðli eftir jafntefli við Austur-Kongó og Kólumbíu.

Sviss á að lokum leik við Alsír í nótt. Svisslendingar unnu riðil með heimamönnum í Kanada, Bosníu og Katar á meðan Alsír endaði í þriðja sæti í sínum riðli eftir jafntefli við Austurríki og sigur gegn Jórdaníu.

16-liða úrslit
19:00 Spánn - Austurríki
23:00 Portúgal - Króatía
03:00 Sviss - Alsír
HM í dag - Spánn, Portúgal og Sviss mæta til leiks
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.