Fotbolti.net
02.07.26 - 13:18
Kári Snorrason

Anderson kynntur hjá City (Staðfest) - Þriðji dýrasti í sögunni

Kaupverðið um 116 milljónir punda.

Kaupverðið um 116 milljónir punda.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City og Nottingham Forest hafa náð saman um kaup á enska miðjumanninum Elliot Anderson fyrir 116 milljónir punda.

Anderson, sem er 23 ára, hefur verið lykilmaður í liði Forest undanfarin tvö ár, síðan hann kom frá Newcastle United.

Hann er þriðji dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á eftir Aleksander Isak (125 milljónir punda) og Florian Wirtz (116.5 milljónir punda) sem voru keyptir til Liverpool síðasta sumar.

Verðið er þó það hæsta sem félag hefur greitt fyrir Englending í sögunni.
Anderson er nú staddur í Bandaríkjunum með enska landsliðinu sem keppir um þessar mundir á heimsmeistaramótinu. Hann hefur verið í byrjunarliði Englendinga í öllum fjórum leikjum liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.