Fotbolti.net
02.08.12 - 12:20
Elvar Geir Magnússon

Ivan Ramis í Wigan (Staðfest)

Ivan Ramis í Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Ivan Ramis hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Wigan.

Hann er keyptur frá Real Mallorca en kaupverðið var ekki gefið upp.
Ramis virtist á leiðinni til West Ham en nú er hann orðinn leikmaður Wigan.

Ramis talar ekki ensku en knattspyrnustjóri Wigan, Roberto Martinez, er spænskur og náði hann að sannfæra leikmanninn um að koma til félagsins.

Ramis er 27 ára en hann hefur spilað 164 leiki fyrir Mallorca og hefur leikið fyrir yngri landsliðin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.