Fotbolti.net
02.08.12 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Kevin de Bruyne til Werder Bremen (Staðfest)

Kevin de Bruyne til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Werder Bremen hefur fengið kantmanninn Kevin de Bruyne á láni frá Chelsea en samningurinn gildir út næsta tímabil.

Þessi 21 árs gamli leikmaður kom til Chelsea frá belgíska félaginu Genk í janúar.

Hann lék hins vegar með Genk á láni út tímabilið og hefur því ekki ennþá leikið mótsleik með aðalliði Chelsea.
Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea, skoðaði de Bruyne í æfingaleikjum gegn Seattle og PSG á dögunum og ákvað í kjölfarið að lána leikmanninn til Werder Bremen.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.