Fotbolti.net
02.09.17 - 10:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andreas Pereira til Valencia (Staðfest)

Andreas Pereira til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur tekið þá ákvörðun að lána hinn efnilega Andreas Pereira. Hann mun spila með Valencia út þessa leiktíð.

Pereira þekkir vel til í spænsku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað með Granada á síðustu leiktíð. Hann var einn af fáu ljósu punktunum í liði Granada sem féll úr efstu deild Spánar.
Félagsskiptaglugginn á Spáni lokaði 24 tímum seinna en glugginn á Englandi og því gengu félagaskipti Pereira upp.

Pereira, sem er 21 árs gamall, spilaði nokkuð mikið með United á undirbúningstímabilinu.

Jose Mourinho, stjóri liðsins, treystir honum hins vegar ekki alveg strax í stærstu leikina og því hefur hann verið lánaður. Hann fær tímabil til að sanna sig í spænsku úrvalsdeildinni.

Comunicado Oficial | #SomPereira 👉 https://t.co/FUmvjdD0lV pic.twitter.com/QIEJKEsm0d

— Valencia CF (@valenciacf) September 1, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.