Fotbolti.net
02.09.17 - 10:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pantilimon til Deportivo La Coruna (Staðfest)

Pantilimon til Deportivo La Coruna (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Watford hefur lánað markvörðinn hávaxna Costel Pantilimon til Spánar.

Pantilimon, sem er 2 metrar og 3 centímetrar, mun spila með Deportivo La Coruna út þessa leiktíð.
Þessi þrítugi rúmenski landsliðsmarkvörður hefur aðeins spilað tvo leiki fyrir Watford frá því hann kom frá Sunderland á síðasta ári.

Heurelho Gomes er aðalmarkvörður Watford og hann hefur verið notaður í fyrstu leikjum tímabilsins. Watford fékk líka grískan markvörð, Orestis Karnezis, lánaðan frá Udinese á lokadegi félagsskiptagluggans og því mátti Pantilimon fara annað.

Hann ákvað að fara í sólina, til Spánar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.