Fotbolti.net
02.09.18 - 21:23
Ívan Guðjón Baldursson

Yaya Toure til Olympiakos (Staðfest)

Yaya Toure til Olympiakos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Yaya Toure varð samningslaus í sumar eftir 8 ár hjá Manchester City og fékk mikið af samningstilboðum. Hann er ekki í áformum Pep Guardiola og fékk lítið að spila á síðasta tímabili eftir rifrildi við stjórann.
Yaya tók sér góðan tíma til að skoða tilboðin og ákvað á endanum að snúa aftur á kunnugar slóðir, til Olympiakos í gríska boltanum.

Yaya spilaði fyrir Olympiakos tímabilið 2005-06 og var síðan keyptur til Mónakó. Hann naut tíma sins í Aþenu og lofaði að snúa aftur til félagsins.

Yaya þarf ekki að kynna fyrir fótboltaáhugamönnum en hann var meðal fremstu miðjumanna heims um árabil, fyrst hjá Barcelona og síðan hjá Man City.

Yaya er 35 ára og hefur borið fyrirliðaband Fílabeinsstrandarinnar frá því að Didier Drogba hætti með landsliðinu 2014.

It is an honour to be back at @olympiacos_org ! 😊

When I left in 2006 I said I would come back and I am delighted to keep my word. 🙌🏾

FULL STATEMENT here: https://t.co/fBBwNFNLi7#YayaIsBack pic.twitter.com/hTG7DysRet

— Yaya Touré (@YayaToure) September 2, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.