Fotbolti.net
02.09.25 - 21:30
Kári Snorrason

Birkir Bjarnason heiðraður fyrir leikinn á föstudag

Birkir Bjarnason er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins.

Birkir Bjarnason er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Birkir Bjarnason verður heiðraður fyrir landsleik Íslands gegn Aserbaísjan á föstudag. Birkir greindi frá því í gærdag að hann hefði lagt skóna á hilluna.
Birkir Bjarnason leggur skóna á hilluna (Staðfest)
TENGT EFNI

Birkir Bjarnason leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Birkir er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, lék alls 113 leiki og skoraði 15 mörk. Hann var lykilmaður í gullaldarliði Íslands og lék fyrir Íslands hönd á bæði EM 2016 og HM 2018.

Í tilkynningu KSÍ segir:

Birkir Bjarnason tilkynnti nýverið að hann hefði lagt knattspyrnuskóna á hilluna og verður hann heiðraður fyrir feril sinn með A landsliði karla fyrir leik Íslands og Aserbaísjan á föstudag.
Þetta verður gert eftir upphitun liðanna og vill KSÍ hvetja vallargesti til að mæta tímanlega og þakka Birki fyrir hans framlag til árangurs íslenska landsliðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.