02.10.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Akos Buzsaky til Portsmouth á eins mánaða samning (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Akos Buzsaky, fyrrverandi leikmaður QPR og Porto, hefur skrifað undir eins mánaða samning við peningalausa neðrideildarfélagið Portsmouth.
Portsmouth má bara gera eins mánaða samninga við leikmenn vegna fjárhagsörðugleika en Buzsaky mun klárlega efla liðið til muna í október.

Buzsaky, sem er þrítugur ungverskur miðjumaður, hefur verið samningslaus síðan hann skrifaði ekki undir nýjan samning hjá QPR í sumar.
,,Akos var að spila í Úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, en hann er hjá okkur því hann vill spila fótbolta og halda sér í formi,\" sagði Michael Appleton, knattspyrnustjóri Portsmouth.
,,Hann er mjög góður leikmaður sem hjálpar sóknarmönnum mikið og á margar úrslitasendingar. Hann er stórkostleg viðbót við liðið okkar.\"
Talið er að Buzsaky spili sinn fyrsta leik fyrir Portsmouth gegn Yeovil á þriðjudaginn.