02.10.12 - 13:30
Fótbolti.net
Íslenskur slúðurpakki - Númer tvö

Heiðar Helguson er orðaður við ÍBV og Þrótt.

Mynd: Getty Images

Alexander Magnússon er sagður vera á óskalista Keflvíkinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Sigurður Jónsson er orðaður við Fram.

Mynd: Guðmundur Svansson

Sigurður Egill Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er nóg af kjaftasögum í gangi í íslenska boltanum þessa dagana. Í íslenska slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
Slúðurpakki númer eitt (25. september)

KSÍ: Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Reading, gæti tekið við U21 ára landsliði Íslands af Eyjólfi Sverrissyni en samningur Eyjólfs er á enda.
FH: Rúnar Már Sigurjónsson leikmaður Vals er áfram orðaður við FH-inga. Björn Daníel Sverrisson er orðaður við norska félagið Stabæk.
Breiðablik: Kópavogsliðið hefur áhuga á að fá Gunnleifur Gunnleifsson markvörð FH í sínar raðir. Ólíklegt er að Ben Everson verði áfram hjá liðinu en hann náði ekki að vinna sér inn fast sæti hjá Blikum. Blikar vilja halda miðverðinum Reene Troost.
ÍBV: Heiðar Helguson, framherji Cardiff, gæti gengið í raðir ÍBV næsta sumar og leikið undir stjórn félaga síns Hermanns Hreiðarssonar.
KR: Óvissa er með framtíðina hjá nokkrum leikmönnum KR. Viktor Bjarki Arnarsson er líklega á förum. Margir leikmenn eru orðaðir við KR. Daníel Laxdal og Kennie Chopart leikmenn Stjörnunnar eru á óskalista KR-inga sem og Ingimundur Níels Óskarsson leikmaður Fylkis og Rasmus Christiansen hjá ÍBV.
Stjarnan: Þjálfaramál Stjörnunnar eru komin á byrjunarreit eftir að KSÍ gaf Heimi Hallgrímssyni ekki leyfi til að taka við liðinu. Leikmannamál eru í biðstöðu á meðan þjálfaramálin skýrast en þó er óvíst með framtíð Kennie Chopart hjá Stjörnunni.
ÍA: Björn Jónsson gæti gengið til liðs við uppeldisfélag sitt frá KR en að öðru leyti er lítið af slúðri á skaganum.
Fylkir: Viðar Örn Kjartansson framherji Selfyssinga er á óskalista Fylkismanna. David Elebert er samningslaus og óvíst er með framtíð hans. Þá er óljóst með framtíð Þóris Hannessonar sem var mikið frá keppni á nýliðnu tímabili.
Valur: Kristján Guðmundsson verður líklega ekki áfram þjálfari Vals. Magnús Gylfason er orðaður við starfið sem og Bjarni Jóhannsson. Þá er einnig orðrómur um að Valur gæti ráðið óreyndan þjálfara. Hlíðarendaliðið hefur áhuga á Tryggva Guðmundssyni leikmanni ÍBV og Fjalari Þorgeirssyni markverði KR. Markvörðurinn Sindri Snær Jensson gæti yfirgefið Hlíðarendaliðið sem og Atli Heimisson.
Keflavík: Alexander Magnússon, leikmaður Grindavíkur, er efstur á óskalista Keflvíkinga. Hólmar Örn Rúnarsson, miðjumaður FH, er einnig orðaður við sitt gamla félag og þá hafa Keflvíkingar líka áhuga á Agli Atlasyni. Hörður Sveinsson er samningslaus og Keflvíkingar vonast til að halda honum en sjálfur er hann þó ekki búinn að gera upp hug sinn. Þá er óvíst hvort Denis Selimovic verði áfram hjá Keflvíkingum.
Fram: Allt er óvíst í þjálfaramálum Fram eftir að stjórn félagsins sagði upp. Sigurður Jónsson, þjálfari Enköping, er orðaður við Fram en framkvæmdastjóri félagsins er sagður hafa fundað með honum í Svíþjóð. Sam Hewson gæti verið á förum frá Fram og óvíst er með framtíð Steven Lennon.
Selfoss: Líklegt er að Logi Ólafsson muni þjálfa Selfyssinga áfram. Tómas Leifsson er líklega á förum frá félaginu sem og heimamennirnir Jón Daði Böðvarsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson og Viðar Örn Kjartansson. Þá er óvíst með Ingólf Þórarinsson sem gæti líka farið frá félaginu.
Grindavík: Sterkur orðrómur er um að Guðjón Þórðarson verði ekki áfram með lið Grindavíkur. Milan Stefán Jankovic gæti tekið við liðinu á nýjan leik en hann er öllum hnútum kunnugur í Grindavík. Jóhann Helgason og Orri Freyr Hjaltalín gætu báðir komið aftur til Grindavíkur eftir að hafa leikið með KA og Þór í sumar. Pape Mamadou Faye gæti yfirgefið Grindvíkinga en hann hefur áhuga á að spila áfram í Pepsi-deildinni.
Víkingur Ó.: Ellert Hreinsson, sóknarmaður Stjörnunnar, gæti gengið í raðir Ólafsvíkurliðsins á ný.
Þróttur R.: Heiðar Helguson, framherji Cardiff, er orðaður við heimför í Laugardalinn.
KA: Allt bendir til þess að Bjarni Jóhannsson taki við KA-mönnum. KA ætlar að reyna að fá Almarr Ormarsson aftur á heimaslóðir frá Fram en hann er samningslaus. Max Touloute, leikmaður Tindastóls, er sterklega orðaður við KA.
Víkingur R.: Fossvogsliðið vill fá Atla Svein Þórarinsson frá Val og Viktor Bjarka Arnarsson frá KR auk þess sem félagið er að skoða markmannsmál sín. Óvíst er hvort gömlu refirnir Hjörtur Hjartarson og Helgi Sigurðsson verði áfram í Víkinni. Sigurður Egill Lárusson gæti farið í Pepsi-deildina en hann hefur farið í viðræður við nokkur félög en Víkingar vilja ólmir halda honum.
Fjölnir: Pablo Punyed vill yfirgefa Fjölni en hann sýndi lipra takta með liðinu í sumar.
Leiknir R.: Gunnar Einarsson mun ekki þjálfa lið Leiknis áfram en félagið ræddi við hann eftir tímabilið.
KF: Ekki er ljóst hvort Lárus Orri Sigurðsson muni þjálfa KF áfram eða ekki.
HK: HK-ingar leita að þjálfara þessa dagana og Gunnlaugur Jónsson hefur verið orðaður við starfið sem og Willum Þór Þórsson og Helgi Sigurðsson. Egill Atlason, varnarmaður Víkings, er orðaður við HK.
Reynir Sandgerði: Jens Elvar Sævarsson gæti haldið áfram sem þjálfari Reynis en Guðmundur Steinarsson er einnig orðaður við starfið. Scott Ramsay, leikmaður Grindavíkur, er orðaður við sitt gamla félag Reyni eins og oft áður.