02.10.12 - 20:22
Ívan Guðjón Baldursson
Pulga nýr þjálfari Cagliari (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ivo Pulga hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Caglari í ítölsku efstu deildinni eftir að Massimo Ficcadenti hætti við stjórnvölinn.
Pulga verður þjálfari liðsins í nánu samstarfi við Diego Lopez en Ficcadenti hætti störfum á mánudaginn þegar Cagliari varð eina lið deildarinnar án sigurs á tímabilinu.

Diego Lopez, unglingaliðsþjálfari Cagliari, hefur verið við stjórn á æfingum félagsins en mun hjálpa Pulga við þjálfarastarfið í haust.
Lopez átti að taka við liðinu en hann er ekki með næg réttindi til að verða þjálfari í efstu deild á Ítalíu.
Pulga var leikmaður Cagliari þegar Claudio Ranieri fór með liðið úr þriðju deild upp í efstu deild og þekkir hann því mjög vel til félagsins.