Fotbolti.net
02.10.18 - 18:44
Arnar Helgi Magnússon

Binni Skúla tekur við Leikni F. (Staðfest)

Binni Skúla tekur við Leikni F. (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brynjar Skúlason er nýr þjálfari Leiknis F. og mun hann stýra liðinu næstu tvö árin. Viðar Jónsson lét af störfum eftir tímabilið en hann hafði þjálfað liðið um nokkurt skeið.
Brynjar var mikið í fréttum í sumar fyrir þær sakir að vera þjálfari Hugins en eins og ljóst er spiluðu Huginn og Völsungur einn umtalaðasta leik síðari ára hér á landi.

Brynjar náði góðum árangri með Huginn en hann kom liðinu annars upp í Inkasso deildina árið 2015. Brynjar er fæddur árið 1978.

Hann lék með Leikni árið 1996 en þá voru þeir með sameinað lið við KBS. Síðar á ferlinum lék hann með Hetti, KFF, HK og Huginn.
rynjar lék með Leikni sumarið 1996 og KBS, sameiginlegu liði Hrafnkels, Súlunnar og Leiknis þar áður. Síðan hefur hann leikið með Hetti, KFF, HK og Huginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.