02.11.12 - 12:36
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Páll Jónsson í Fylki (Staðfest)

Kristján Páll Jónsson er kominn til Fylkis frá Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir var að staðfesta á vef stuðningsmanna félagsins, Fylkismenn.is, að Kristján Páll Jónsson sé genginn í raðir félagsins frá Leikni.
Kristján Páll var samningslaus að tímabilinu loknu og hefur rætt við nokkur félög. Hann valdi að semja við Fylki.

Kristján er 24 ára gamall og kemur frá Leikni Reykjavík en hann er gríðarlega snöggur vængmaður sem gaf það út á dögunum að hann vildi reyna fyrir sér í efstu deild.
Kristján er uppalinn Leiknismaður og hefur spilað 115 leiki fyrir Leikni í deild og bikar og skorað í þeim 21 mark.
Kristján spilaði sinn fyrsta leik fyrir Leikni árið 2006 þá 18 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár.
Kristján Páll er annar leikmaðurinn sem Fylkir fær til sín eftir að tímabilinu lauk en áður kom miðvörðurinn Sverrir Garðarsson frá Haukum.
Þá á félagið einnig í viðræðum við Tryggva Guðmundsson sem hefur leikið með ÍBV undanfarin ár.