02.11.12 - 17:03
Elvar Geir Magnússon
Arnar Sveinn Geirsson aftur í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Sóknarmaðurinn Arnar Sveinn Geirsson skrifaði í dag undir samning við Val til tveggja ára. Arnar sem á að baki fjölda leikja fyrir meistaraflokk Vals lék á síðasta tímabili vel fyrir Víking Ólafsvík sem komst upp úr 1. deild í Pepsi-deildina.
Arnar segir við vefsíðuna Valsarar.net að tilfinningin sé frábær að vera kominn aftur í Val.
„Þetta er uppeldisfélagið mitt og maður vill vera að spila þar á meðan maður er á Íslandi,” segir Arnar sem lýst vel á stöðu mála hjá Val.
„Þeir leikmenn sem eru nú þegar komnir líst mér mjög vel á. Fjalar gefur okkur mikla reynslu og er þar að auki frábær markmaður.\"
Arnari hlakkar til að vinna með Magnúsi Gylfasyni sem er tekinn við þjálfun Vals.
„Maggi er algjör toppmaður sem ég held að eigi eftir að reynast klúbbnum virkilega vel. Hann hefur náð flottum árangri í gegnum tíðina og ég hlakka til að byrja að vinna með honum. Stefnan sem klúbburinn er að setja er bara eins og hún á að vera og ég er ánægður með það!”

Heimild: Valsarar.net

Arnar Sveinn fór upp með Víkingi Ólafsvík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Arnar er mættur aftur á Vodafone-Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð