Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. desember 2019 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Cantwell sáttur með stigið gegn Arsenal
Tom Cantwell.
Tom Cantwell.
Mynd: Getty Images
Englendingurinn ungi, Todd Cantwell er einn af lykilmönnunum í liði Norwich City. Hann var á skotskónum í gær í 2-2 jafntefli Norwich og Arsenal.

Cantwell var svekktur að Norwich hafi ekki náð að klára leikinn með sigri.

„Við fengum færi til að klára þetta en það hafðist ekki og við tökum stigið sáttir."

Cantwell er búinn að skora 4 deildarmörk á tímabilinu, hann afgreiddi boltann snyrtilega í netið í gær.

„Ég er búinn að vera æfa það sérstaklega hvernig ég vil klára færin, maður verður að nýta færin þegar þau koma."

Norwich situr í 19. sæti deildarinnar með 11 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Næst mæta þeir Southampton sem er einu sæti ofar með stigi meira.




Athugasemdir
banner
banner
banner