Lionel Messi gerði eina mark leiksins er Barcelona lagði Atletico Madrid að velli í spænsku toppbaráttunni í gærkvöldi.
Messi skoraði laglegt mark þar sem hann lagði af stað á hægri kantinum og setti knöttinn laglega í fjærhornið eftir samspil við Luis Suarez.
Viðbrögð Giuseppe Simeone, þjálfara Atletico og samlanda Messi, hafa vakið athygli. Hann hvatti sína menn til að stöðva snillinginn smáa en þegar boltinn endaði í netinu gat hann ekki brugðist við með neinu öðru heldur en lófataki.
Messi fékk afhentan Gullknöttinn fyrr í kvöld og setti þar með met í knattspyrnuheiminum. Hann er fyrsti leikmaður sögunnar til að hljóta verðlaunin sex sinnum, en Cristiano Ronaldo er í öðru sæti með fimm.
Myndband af atvikinu er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Diego Simeone's reaction to Messi's goal yesterday is priceless.pic.twitter.com/gyUdOZawaO
— BU Videos/Gifs (@BU_Videos) December 2, 2019
Athugasemdir