03.01.19 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Naldo semur við Mónakó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mónakó ætlar að styrkja sig í þessum félagaskiptaglugga en félagið er búið að semja við brasilíska miðvörðinn Naldo. Hann kemur frá Schalke 04 í Þýskalandi.
Hinn 36 ára gamli Naldo hefur verið í rúm 13 ár í Þýskalandi og spilað fyrir Wolfsburg, Werder Bremen og Schalke.
Naldo samdi við Schalke sumarið 2016, en hann hefur lítið spilað á þessari leiktíð.
Hann mun koma inn með reynslu í lið Mónakó sem hefur fengið á sig 29 mörk í 18 leikjum í frönsku úrvalsdeildinni. Aðeins Guingamp, Dijon og Amiens hafa fengið á sig fleiri mörk.
Lærisveinar Thierry Henry hafa verið í miklum vandræðum á þessu tímabili. Liðið er sem stendur í næst neðsta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.
Cesc Fabregas, miðjumaður Chelsea, er líka sagður á leiðinni til Mónakó.

👀 Incoming ... pic.twitter.com/ETDcoHT42Y
— AS Monaco EN (@AS_Monaco_EN) January 3, 2019