03.01.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Númi Kárason í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: Dalvík/Reynir

Mynd: Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir hefur gengið frá samningi við sóknarmanninn Núma Kárason. Hann skrifar undir tveggja ára samning og mun því leika með liðinu í 2. deild næsta sumar.
Númi er sóknarmaður sem er fæddur árið 1996. Hann er uppalinn Þórsari en lék síðasta sumar með Einherja á Vopnafirði. Hann lék 21 leik fyrir Einherja í deild og bikar og skoraði í þeim 14 mörk. Einherji leikur í 3. deild, deildinni sem Dalvík/Reynir komst upp úr.
Númi var valinn í lið ársins í 3. deildinni hér á Fótbolta.net fyrir frammistöðu sína síðastliðið sumar.
„Við hjá Dalvík/Reyni erum gífurlega ángæðir með að hafa náð í Núma Kárason. Númi sýndi okkur síðasta sumar hversu öflugur hann er og vakti hann athygli okkar. Það stafar sífelld ógn af svona hröðum leikmönnum og við trúum því að hann muni falla vel inn í okkar leikskipulag. Hann er flottur strákur, innan sem utan vallar, og við hlökkum því til að sjá Núma í bláu treyjunni næsta sumar," sagði Stefán Garðar Níelsson, formaður Dalvíkur/Reynis.