Fotbolti.net
03.02.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Amiens vann Cardiff í kapphlaupinu um Pieters (Staðfest)

Pieters getur bæði leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður. Hann á 18 landsleiki að baki fyrir Holland.

Pieters getur bæði leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður. Hann á 18 landsleiki að baki fyrir Holland.

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski varnarmaðurinn Erik Pieters er búinn að skrifa undir lánssamning við Amiens í frönsku deildinni þar sem hann verður út tímabilið.
Pieters er 30 ára og hefur spilað 190 deildarleiki fyrir Stoke City síðan hann var keyptur til félagsins sumarið 2013.

Úrvalsdeildarfélagið Cardiff City reyndi einnig að fá Pieters lánaðan en Frakkarnir höfðu betur í kapphlaupinu.

Pieters var fastamaður í liði Stoke á fyrri hluta tímabilsins en hefur aðeins spilað tvo leiki fyrir félagið eftir jól. Stoke er um miðja Championship deildina, níu stigum frá umspilssæti.

Amiens er í bullandi fallbaráttu í efstu deild í Frakklandi og náði að krækja í þrjá menn á lánssamningum í janúar. Framherjinn Serhou Guirassy kom frá Köln, en hann er 22 ára og hefur gert 10 mörk í 20 leikjum fyrir U19 og U20 landslið Frakka. Þá skrifaði Alexis Blin einnig undir lánssamning, hann er 22 ára miðjumaður sem kemur á lánssamningi frá Toulouse.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.