Fotbolti.net
03.02.19 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Liverpool lánar Chirivella til Spánar (Staðfest)

Liverpool lánar Chirivella til Spánar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur ákveðið að lána spænska miðjumanninn Pedro Chirivella til Extremadura sem er í fallbaráttu í B-deildinni á Spáni.
Chirivella er 21 árs og hefur verið á mála hjá Liverpool síðan félagið krækti í hann úr unglingastarfi Valencia sumarið 2013. Fjölskylda leikmannsins flutti með honum til Englands og sá knattspyrnufélagið um að útvega foreldrum hans og ættingjum störf í Liverpool.

Miðjumaðurinn hefur aðeins spilað fimm keppnisleiki fyrir Liverpool og er líklegt að félagið muni losa sig við hann, en samningur hans rennur út 2020.

Liverpool var næstum búið að selja Chirivella til Rosenborg í fyrra og höfðu félögin komist að samkomulagi um kaupverð, sem var aðeins 3,5 milljónir punda með því ákvæði að Liverpool gæti keypt hann aftur fyrir sama verð næstu þrjú árin. Þau félagaskipti gengu ekki í gegn og nú heldur Spánverjinn aftur til heimalandsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.