Fotbolti.net
03.02.23 - 12:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arteta er þjálfari mánaðarins í þriðja sinn

Mikel Arteta.

Mikel Arteta.

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta er þjálfari mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni í þriðja sinn á þessari leiktíð.

Hann fær verðlaunin fyrir janúarmánuð en Arsenal spilaði þrjá deildarleiki í mánuðinum og vann tvo þeirra. Liðið gerði þá markalaust jafntefli við Newcastle.
Arsenal tókst að vinna stórgóðan sigur gegn Manchester United á Emirates-leikvanginum í mánuðinum og vann einnig 0-2 sigur gegn Tottenham á útivelli.

Heilt yfir frábær úrslit fyrir Arsenal í mánuði þar sem leikjadagskráin sem var erfiðust.

Arsenal er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni og er útlitið gott fyrir liðið þessa stundina.

Það var Marcus Rashford úr Manchester United sem var valinn leikmaður mánaðarins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.