Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 03. febrúar 2023 10:05
Elvar Geir Magnússon
Zlatan ekki í Meistaradeildarhópnum fyrir útsláttarkeppnina
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: EPA
Sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic er ekki í leikmannahópi AC Milan fyrir útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

Milan mætir Tottenham í 16-liða úrslitum, fyrri leikurinn er á San Siro þann 14. febrúar og seinni leikurinn þremur vikum síðar.

Zlatan er 41 árs og hefur ekki spiað fyrir Milan á þessu tímabili eftir að hafa farið í aðgerð á hné síðasta sumar.

Ítölsku risarnir höfðu vonast til þess að hann gæti snúið aftur seinni hluta tímabilsins.

Zlatan er með 33 mörk í 60 leikjum fyrir Milan og á síðasta tímabili hjálpaði hann liðinu að vinna meistaratitilinn í fyrsta sinn í ellefu ár. Hann hefur hinsvegar verið á meiðslalistanum í sex mánuði og Milan ákveðið að skilja hann eftir utan Meistaradeildarhópsins.
Athugasemdir
banner
banner