Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mið 03. mars 2021 17:30
Fótbolti.net
Æfingaleikur: ÍBV kom til baka gegn Gróttu
Þóra Björg Stefánsdóttir
Þóra Björg Stefánsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta 2 - 3 ÍBV
1-0 Sjálfsmark
2-0 Diljá Mjöll Aronsdóttir
2-1 Viktorija Zaicikova
2-2 Þóra Björg Stefánsdóttir
2-3 Þóra Björg Stefánsdóttir

Grótta tók á móti ÍBV í æfingaleik á Vivaldivellinum í gærkvöldi.æ Gróttuliðið er á leið í sitt annað tímabil í Lengjudeildinni í sumar á meðan ÍBV leikur í Pepsi Max deildinni.

Gróttukonur byrjuðu vel og komust 2-0 yfir eftir sjálfmark frá varnarmanni ÍBV og þá skoraði Diljá Mjöll Aronsdóttir beint úr horni. ÍBV komst betur inn í leikinn þegar leik á hálfleikinn og minnkaði Viktorija Zaicikova muninn áður en Þóra Björg Stefánsdóttir jafnaði.

Þóra skoraði annað mark í seinni hálfleik sem tryggði ÍBV sigurinn en Grótta var nálægt því að jafna metin rétt fyrir leikslok.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner