Fotbolti.net
03.04.26 - 23:30
Kári Snorrason

Pep segir óánægðum leikmönnum frjálst að fara - „Vona að Rodri verði hérna eins lengi og hægt er“

Pep segir óánægðum leikmönnum frjálst að fara - „Vona að Rodri verði hérna eins lengi og hægt er“
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að óánægðir leikmenn geti yfirgefið félagið, en hann vonast þó til að Rodri verði áfram.

Rodri lét hafa eftir sér í landsleikjahléinu að hann myndi íhuga að ganga til liðs við Real Madrid og sagði erfitt að hafna bestu félögum heims.
Rodri daðrar við Real - „Þú hafnar ekki bara bestu félögum heims"
TENGT EFNI

Rodri daðrar við Real - „Þú hafnar ekki bara bestu félögum heims"

Samningur Rodri rennur út næsta sumar en hann hefur verið hjá Man City frá árinu 2019. Fótboltablaðamaðurinn Fabrizio Romano greindi frá því á dögunum að Rodri væri með samningstilboð á borðinu frá City.

„Það er enginn leikmaður sem myndi hafna tækifærinu að spila fyrir Real Madrid. Ég vona þó að Rodri verði hér eins lengi og hægt er, því hann er frábær leikmaður. En hver og einn ræður sinni framtíð,“ sagði Pep.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.