Njarðvík hefur samið við miðvörðinn Milos Ivankovic um að leika með liðinu í sumar.
Milos er 33 ára gamall miðvörður frá Serbíu sem kom fyrst hingað til lands árið 2014 þegar hann gekk í raðir Hugins í 2. deild. Hann spilaði með Fjarðabyggð í 1. deild 2015 og fór aftur til Hugins 2017 og 2018. Hann gekk svo í raðir Vestra fyrir sumarið 2019.
Hann hjálpaði Vestra að komast upp í Lengjudeildina sumarið 2019. Síðasta sumar spilaði hann 12 leiki í Lengjudeild karla og skoraði eitt mark. Hann spilaði einnig þrjá leiki í Mjólkurbikarnum.
Milos samdi við Fjarðabyggð fyrir þetta tímabil en hann og félagið komust á dögunum að samkomulagi um riftun á samningi.
Njarðvík er rétt eins og Fjarðabyggð í 2. deild karla.
Athugasemdir