Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 03. júlí 2022 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carvalho: Til að verða bestur í heimi þarftu að spila með þeim bestu
Mynd: Getty Images

Fabio Carvalho gekk formlega til liðs við Liverpool í dag en félagið gekk frá kaupum á leikmanninum frá Fulham í maí.


Carvalho var til viðtals hjá LFC TV í dag en hann er gríðarlega spenntur fyrir því að spila fyrir Liverpool.

„Til þess að verða besti leikmaður í heimi þarftu að spila með þeim bestu. Ég er kominn hingað til að gera það," sagði Carvalho.

Hann er spenntur að vinna með Jurgen Klopp.

„Hann er ein aðalástæðan fyrir því að ég kom hingað. Ég hef séð hvað hann hefur gert til að hjálpa leikmönnum að taka næsta skref og ég er viss um að hann sé rétta manneskjan til að gera það með mig," sagði Carvalho.


Athugasemdir
banner
banner
banner