Fotbolti.net
03.07.26 - 17:03
Kári Snorrason

Refsað ranglega fyrir að vera með hár

Ógilda markinu fagnað.

Ógilda markinu fagnað.

Canon

Mynd: EPA

Mikil reiði ríkir í Króatíu eftir að liðið féll úr leik gegn Portúgal á HM eftir umdeildan VAR-dóms í uppbótartíma leiksins.

Joskos Gvardiol jafnaði metin í stöðuna 2-2 á 103. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu eftir langa VAR skoðun.

Tæknibúnaður í boltanum greindi örlitla snertingu eftir að hár Igor Matanovic snerti boltann áður en hann barst til samherja sem var rangstæður.
Hvað gerðist í nótt? - Örflagan sem bjargaði Ronaldo og félögum
TENGT EFNI

Hvað gerðist í nótt? - Örflagan sem bjargaði Ronaldo og félögum

Króatískir fjölmiðlar hafa bent á reglur FIFA þar sem segir að hár teljist aðeins hluti líkamans ef það hafi áhrif á hreyfingu eða stefnu boltans. Þeir halda því fram að boltinn hafi ekki breytt um stefnu og því hefði ekki átt að dæma rangstöðu.

Þá segir króatíski alþjóðadómarinn, Bruno Maric, að tæknin eigi að styðjast við sýnilegar sannanir. Ef skynjarinn nemi snertingu verði dómarar einnig að geta staðfest hana sjónrænt, annars muni alltaf leika vafi á ákvörðuninni.
Sérstök örflaga í boltanum greindi snertingu.

Sérstök örflaga í boltanum greindi snertingu.

Canon

Mynd: Af netinu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.