Fotbolti.net
03.07.26 - 17:09
Kári Snorrason

Byrjunarlið Ástralíu og Egyptalands: Salah byrjar

Óvissa var um hvort að Salah gæti spilað.

Óvissa var um hvort að Salah gæti spilað.

Canon

Mynd: EPA

Ástralía og Egyptaland eigast við í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Flautað verður til leiks klukkan 18:00, búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.
Mohamed Salah er í byrjunarliði Egypta en óvíst var hvort að hann gæti verið með vegna meiðsla aftan í læri.

Alls gera Egyptar fimm breytingar frá 1-1 jafntefli gegn Íran í síðasta leik. Ber þar helst að nefna að Oumar Marmoush, leikmaður Man City, snýr aftur inn í liðið.

Tony Popovic landsliðsþjálfari Ástralíu heldur liði sínu óbreyttu frá 0-0 jafntefli gegn Paragvæ í lokaumferð riðlakeppninnar.

Egyptaland: Shobeir; Ibrahim, Hany, Rabia, Hafez, Ashour, Ziko, Fathy, Attia, Salah, Marmoush

Ástralía: Beach; Circati, Behich, Souttar, Herrington, Bos, O'Neill, Metcalfe, Irvine, Volpato, Irankunda.


Irankunda fagnar marki.

Irankunda fagnar marki.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.