Fotbolti.net
03.07.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Átta Túnisar féllu á lyfjaprófi en hljóta ekki refsingu

Leikmennirnir borðuðu mengað kjöt.

Leikmennirnir borðuðu mengað kjöt.

Canon

Mynd: EPA

Efni á bannlista fundust í sýnum átta leikmanna landsliðs Túnis á HM. Ástæðuna má rekja til mengunar í kjöti sem leikmennirnir borðuðu í herbúðum liðsins í Mexíkó.

Klenbúteról fannst í sýnunum, lyf sem slakar á öndunarvegum. Efnið hefur verið notað af líkamsræktarfólki til að losna við fitu en halda um leið í vöðvamassa. Í sumum löndum, þar á meðal Mexíkó, er það notað sem vaxtarhvati fyrir nautgripi.

Lyfjaeftirlit HM hefur látið félagslið umræddra leikmanna vita en talið er að þeir hljóti enga refsingu.
Hvað var versta liðið á HM?
TENGT EFNI

Hvað var versta liðið á HM?

Túnis er farið heim af HM en liðið átti skelfilegt mót. Þjálfarinn Sabri Lamouchi var rekinn eftir 5-1 tap gegn Svíþjóð í fyrsta leik. Gengið batnaði ekki og liðið tapaði 4-0 fyrir Japan og svo 3-1 gegn Hollandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.