Fotbolti.net
03.08.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Milos Krasic kominn til Fenerbahce (Staðfest)

Milos Krasic kominn til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Serbneski kantmaðurinn Milos Krasic er genginn til liðs við tyrknesku risana í Fenerbahce.

Krasic kemur til félagsins fyrir sjö milljónir evra en hann datt úr byrjunarliði Juventus á síðasta tímabili og vildi því skipta um félag í sumar.
Krasic er 27 ára gamall og kom til Juventus fyrir fimmtán milljónir evra, en eftir að Antonio Conte var ráðinn til félagsins missti hann sæti sitt í liðinu.

Nokkur félög hafa verið að reyna að krækja í Krasic en Fenerbahce staðfestir á opinberri vefsíðu sinni að Krasic er búinn að skrifa undir samning.

Krasic, sem á 46 landsleiki að baki fyrir Serbíu, flýgur til Istanbul á föstudaginn og verður þá kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.