03.08.12 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð
Dickson Etuhu til Blackburn (Staðfest)

Dickson Etuhu er kominn til Blackburn.

Mynd: Getty Images

Dickson Etuhu er kominn til Blackburn.

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur gengið frá samningum um að Dickson Etuhu gangi til liðsins frá Fulham.
Etuhu sem er þrítugur skrifaði undir fjögurra ára samning við Blackburn þar sem hann mun spila á miðjunni með Danny Murphy sem kom einnig frá Fulham.
Etuhu sem spilaði yfir 125 leiki fyrir Fulham verður sjöundu kaup Blackburn í sumar en Steve Kean er að reyna að búa til hóp sem kemst upp í úrvalsdeildina að nýju.
,,Dickson er leikmaður sem ég hef lengi haft trú á lengi og hann verður frábær viðbót við hópinn,\" sagði Etuhu.
,,Hann er kraftmikill á miðjunni og hefur spilað meðal þeirra bestu með Fulham og við erum vissir um að hann muni bæta möguleika okkar á miðjunni.\"
Etuhu kom til Fulham árið 2008 eftir eitt tímabil hjá Sunderland. Hann hafði áður verið hjá Norwich. Hann hóf ferilinn hjá Manchester City en fór til Preston árið 2002 þar sem hann spilaði 150 leiki.

Heimild: Sky