Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 03. ágúst 2020 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Fernandes bestur í júlí
Mynd: Getty Images
Portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes hefur verið valinn sem besti leikmaður júlí mánaðar fyrir stórkostlegar frammistöður sínar með Manchester United.

Fernandes hefur komið inn sem stormsveipur í enska boltann og verið að raða inn mörkum og stoðsendingum er Rauðu djöflarnir náðu ólíklegu Meistaradeildarsæti.

Í fjórtán úrvalsdeildarleikjum skoraði Fernandes 8 mörk og lagði 7 upp, þar af átti hann 4 mörk og 4 stoðsendingar í sex leikjum í júlí.

Fernandes verður 26 ára í september og var ótrúlega fljótur að stimpla sig inn í byrjunarlið Man Utd og ensku úrvalsdeildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner