Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. ágúst 2021 20:23
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Rúnar í ágætri stöðu - PSV fór létt með Midtjylland
Rúnar Már og félagar í Cluj fara til Sviss í næstu viku
Rúnar Már og félagar í Cluj fara til Sviss í næstu viku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar hans í Cluj frá Rúmeníu gerðu 1-1 jafntefli við Young Boys frá Sviss í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Íslenski landsliðsmaðurinn var í byrjunarliði Cluj en var skipt af velli á 84. mínútu.

Young Boys jafnaði metin aðeins nokkrum mínútum síðar og náði í mikilvægt mark. Útivallarmörkin gilda ekki lengur og verður því mikil spenna í síðari leiknum í Sviss.

Mikael Neville Anderson var ekki með Midtjylland sem tapaði 3-0 fyrir PSV í Hollandi.

Síðari leikirnir fara fram eftir nákvæmlega viku en þau lið sem fara áfram fara í lokaumferðina í forkeppni Meistaradeildarinnar þar sem sæti í riðlakeppninni er í boði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner