03.09.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Rúrik Gíslason í FC Kaupmannahöfn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FC Kaupmannahöfn hefur keypt Rúrik Gíslason frá OB en frá þessu var greint síðdegis í dag.
Rúrik skrifaði undir fjögurra ára samning við Kaupmannahöfn en hann verður þar með þriðji Íslendingurinn í herbúðum liðsins ásamt Ragnari Sigurðssyni og Sölva Geir Ottesen.

Hinn 24 ára gamli Rúrik skoraði sjálfur í 2-2 jafntefli OB og Kaupmannhöfn í gær en það reyndist vera síðasti leikur hans með OB.
,,Rúrik er leikmaður sem við höfum fylgst með í lengri tíma og því erum mjög ánægðir með að fá hann til FC Kaupmannahafnar,\" sagði Carsten V. Jenssen yfirmaður íþróttamála hjá FC Kaupmannahöfn.
Rúrik hefur leikið með OB frá því árið 2009 en þá kom hann til félagsins frá Viborg í Danmörku. Rúrik verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu á föstudag þegar liðið fær Noreg í heimsókn.

Heimild: Bold.dk