03.09.12 - 19:08
Daníel Freyr Jónsson
Hulk til Zenit St Petersburg (Staðfest)

Hulk er farinn til Rússlands.

Mynd: Getty Images

Hulk er farinn til Rússlands.

Mynd: Getty Images
Það er ljóst að Zenit St. Petersburg ætlar sér stóra hluti í Meistaradeild Evrópu í vetur, en félagið staðfesti rétt í þessu kaupin á framherjanum Hulk frá Porto.
Fréttir herma að Rússarnir hafi greitt Porto milli 50 og 60 milljónir evra fyrir hinn 26 ára gamla Brasilíumann og skrifaði hann undir fimm ára samning. Hann er þar með dýrasti leikmaðurinn sem spilað hefur í Rússlandi.
Hulk var sterklega orðaður við Chelsea í allt sumar en aldrei varð neitt úr því, þó að leikmaðurinn sjálfur hafi viðurkennt að það væri líklega kominn tími fyrir breytingu á ferlinum.
Í síðustu viku opinberaði forseti Porto, Pinto da Costa, að félagið hefði hafnað 50 milljón evra tilboði í Hulk frá Zenit. Viðræður héldu þó áfram og komust félögin að samkomulagi á endanum.
Hulk skoraði 21 mark í öllum keppnum á síðustu leiktíð og var mikilvægur hlekkur í liði Porto sem vann Evrópudeildina leiktímabilið 2010-11.
Zenit eru þó hvergi nærri hættir á leikmannamarkaðinum og er Axel Witsel, miðjumaður Benfica, næstur á dagskrá. Félögin tvö eru sögð hafa komist að samkomulagi um að Zenit greiðu um 30 milljónir evra fyrir hann, en félagaskiptaglugginn í Rússlandi lokar ekki fyrr en á miðvikudag.