Fotbolti.net
03.09.18 - 22:30
Ingólfur Páll Ingólfsson

Claudio Marchisio skrifar undir hjá Zenit (Staðfest)

Marchisio er kominn til Zenit.

Marchisio er kominn til Zenit.

Canon

Mynd: BBC

Hinn 32 ára gamli Claudio Marchisio hefur skrifað undir hjá Zenit Saint Petersburg í Rússlandi og skrifar undir tveggja ára samning.
Marchisio kemur til Zenit á frjálsri sölu frá Juventus. Þar með líkur 25 ára ferli Marchisio sem leikmaður Juventus en hann spilaði 389 leiki fyrir félagið sem atvinnumaður.

Leikmaðurinn spilaði aðeins 15 leiki fyrir félagið í Seria A á síðasta tímabili en mikil samkeppni er um byrjunarliðssæti hjá félaginu auk þess sem leikmaðurinn glímdi við meiðsli.

Eftir kom Emre Can var ljóst að dagar Marchisio hjá félaginu væru taldir og hann komst að samkomulagi við félagið um að rifta samningi sínum. Hann mun klæðast treyju númer 10 hjá sínu nýja félagi sem leitast eftir því að vinna Rússnesku úrvalsdeildina í fyrsta skipti síðan 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.