Fotbolti.net
03.09.18 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Hatem Ben Arfa kominn til Rennes (Staðfest)

Ben Arfa á 15 A-landsleiki að baki fyrir Frakka auk rúmlega 40 yngri landsleikja.

Ben Arfa á 15 A-landsleiki að baki fyrir Frakka auk rúmlega 40 yngri landsleikja.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski kantmaðurinn Hatem Ben Arfa er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Rennes í franska boltanum.
Ben Arfa, sem er 31 árs, kemur á frjálsri sölu eftir tvö ár hjá Paris Saint-Germain og er búist við miklu af honum.

Rennes endaði í fimmta sæti deildarinnar á síðasta tímabili og mun Ben Arfa líklegast fara beint í byrjunarliðið.

Ben Arfa gerði garðinn frægan með Lyon og Marseille á sínum tíma en hann sprakk ekki út fyrr en hjá Nice fyrir þremur árum. Þar skoraði hann 18 mörk í 37 leikjum.

Íslenskir fótboltaáhugamenn þekkja Ben Arfa líklegast eftir tíma hans hjá Newcastle frá 2010 til 2014.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.