Fotbolti.net
03.09.18 - 19:42
Ingólfur Páll Ingólfsson

Inkasso kvenna: Fylkir í úrvalsdeildina (Staðfest)

Fylkir er komið í Pepsi deildina.

Fylkir er komið í Pepsi deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Einn leikur var á dagskrá í Íslenska boltanum í dag þar sem Fylkir gat tryggt sér sæti í Pepsi deild kvenna með sigri á Aftureldingu/Fram.
Það var augljóst frá byrjun að Fylkiskonur voru mættar til að sigra og þær komust yfir á 9. mínútu með marki frá Sæunni Rós eftir stoðsendingu frá Huldu Sigurðardóttur.

Fylkir var langt frá því að vera hætt og komst í 2-0 skömmu síðar með marki úr vítaspyrnu. Fylkiskonur voru hreinlega með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og áttu hvert færið á fætur öðru. Þriðja markið kom rétt fyrir leikhlé þegar Bryndís Arna kom boltanum í netið af stuttu færi.

Afturelding/Fram virtist hafa vaknað örlítið til lífsins í hálfleik og byrjuðu þann síðari á því að minnka muninn með marki frá Shamira Suleman. Það var allt annað að sjá til gestanna í þeim síðari og þær buðu upp á alvöru baráttu. Hinsvegar skoraði Fylkir síðasta mark leiksins en Hulda gerði út um leikinn á 79. mínútu eftir frábæran sprett frá Berglindi Rós.

Sigur Fylkis þýðir að þær eru komnar í Pepsi deildina að ári. Innilega til hamingju Fylkir!

Fylkir 3 - 1 Afturelding/Fram
1-0 Sæunn Rós Ríkharðsdóttir (\'9 )
2-0 Margrét Björg Ástvaldsdóttir (\'13 , víti)
3-0 Bryndís Arna Níelsdóttir (\'45 )
3-1 Samira Suleman (\'47 )
4-1 Hulda Sigurðardóttir (\'79 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.