Fotbolti.net
03.09.18 - 14:07
Magnús Már Einarsson

Ronaldo búinn að kaupa Valladolid (Staðfest)

Með veskið á lofti.

Með veskið á lofti.

Canon

Mynd: Getty Images

Ronaldo, fyrrum framherji brasilíska landsliðsins, hefur keypt 51% hlut í Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni.
Hinn 42 ára gamli Ronaldo spilaði með Real Madrid, Inter Milan, AC Milan og Barcelona á glæstum ferli sínum.

Real Valladolid er í 16. sæti í La Liga en liðið er ennþá án sigurs á þessu tímabili.

„Koma Ronaldo kemur Real Valladolid á kortið og hjálpar félaginu að taka skref fram á við í gæðum,\" sagði Carlos Suarez forseti Valladolid.

Ronaldo var tvívegis valinn leikmaður ársins í heiminum en hann skoraði 62 mörk á ferli sínum með brasilíska landsliðinu og skoraði meðal annars bæði mörkin gegn Þýskalandi í úrslitaleik HM 2002.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.